Við erum alhliða byggingarverktakar með áratuga reynslu

JE Skjanni byggingarverktakar eru alhliða verktakafyrirtæki sem hefur víðtæka reynslu af hvers lags verkefnum á sviði nýbygginga, viðhalds, verkefnastjórnunar, byggingarstjórnunar og samþættingar verkþátta þar sem margir verktakar koma að málum.

Auk þess að byggja íbúðir og atvinnuhúsnæði sinnir J.E. Skjanni verktöku fyrir aðra og gildir þá einu hvort um er að ræða flókin eða einföld verkefni. Markmiðið er að skila ávallt vönduðu verki.

Fyrirtækið var stofnsett árið 1996 en eigandinn, Jens Sandholt, hefur starfað við framkvæmda- og byggingarstjórn frá árinu 1984. Meðal fyrri verkefna hans má helst nefna Árbæjarlaug, Höfðabakkabrú, Sjóvárhús í Kringlu, íbúðar- og atvinnuhúsnæði við Þverholt og Miðholt, nýju Lýsisverksmiðjuna, stækkun Álversins í Straumsvík, vöruhótel Eimskipa, fjölda íbúðabygginga við Sóltún og Borgartún og nýtt húsnæði Byrs, Digranesvegi 1 í Kópavogi.